Þorrablót SJÓR BREYTT DAGSETNING

Þorrablót Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldið á bóndadag föstudaginn 23. janúar í félagsheimili S.J.Ó.R. Höllinni.  Borðhald hefst kl 20:00.

Það er aðeins eitt þorrablót SJÓR á ári og það vill enginn SJÓR félagi missa af því.

Verð aðeins 4.000,-

Vinsamlegast skráið þátttöku hér á heimasíðunni „Þorrablót“ , á netfanginu sjorek@outlook.com eða hjá formanni í síma 664-3109 fyrir þriðjudaginn 20. janúar.

Jólakveðja

Stjórn SJÓR óskar félagsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra sem og öllu sjóstangaveiði fólki , samstarfsmönnum,skipstjórum og styrktaraðilum um land allt  gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir allar góðu samverustundirnar á árinu sem er að líða.

Fyrir hönd stjórnar SJÓR
Elín Snorradóttir Formaður

Jólaglögg SJÓR

Föstudaginn 28. nóvember verður hið árlega jólaglögg Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur.

Þetta er kjörið tækifæri til að eiga góða stund saman í góðra veiðimanna hópi áður en jólastressið fer að segja til sín.

Jólaglöggið verður haldið í Höllinni, félagsheimilinu okkar í verbúðunum og munu dyrnar opna klukkan 20:00

Sviðaveisla og uppskeruhátíð

Árleg og bragðgóð sviðaveisla SJÓR verður haldin föstudaginn 31. október kl 20:00. Við munum fagna veiði ársins og gleðjast í góðra veiðivina hóp.

Þar sem húsrúm er takmarkað er nauðsynlegt að skrá þátttöku á  skráningarsíðu sjorek.is „Viðburðir“ fyrir þriðjudaginn 28. október.

Aðgangur aðeins kr. 3.000,-

Sviðaveisla og uppskeruhátíð

Föstudagurinn 31. október verður góður dagur því þá um kvöldið ætlar Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur að halda sína árlegu, bragðgóðu og skemmtilegu sviðaveislu og uppskeruhátið.

Veiðifélagar eru eru hvattir til að mæta og fagna í góðra vina hópi, skiptast á veiðisögum (sönnum og ósönnum) og njóta góðra veitinga.

Þar sem húsrúm er takmarkað er nauðsynlegt að skrá þátttöku á  skráningarsíðu sjorek.is „Viðburðir“ fyrir þriðjudaginn 28. október.

Aðgangur aðeins kr. 3.000,-

Afmælismót SjóÁk 15.- 16. ágúst

50 ára afmælismót Sjóstangaveiðifélags Akureyrar verður haldið dagana 15. – 16. ágúst.

Róið er frá Dalvík báða dagana.  Keppt verður í blönduðum sveitum. Boðið verður upp á eins dags veiði fyrir veiðimenn sem eru 25 ára og yngri og 60 ára og eldri ef nægt þátttaka fæst.  Þeir sem kjósa eins dags veiði verður úthlutað veiðidegi í samræmi við óskir þeirra ef mögulegt er.

Mótsskrá

Fimmtudagur 14. ágúst 2014
kl 20:00  Sjallinn súpa í boði SjóÁk að hætti Valdemars.
kl 20:30 Mótsetning í Sjallanum Akureyri. Þáttakendur boðnir velkomnir og mótsgögn afhent.

Föstudagur 15. ágúst 2014
kl 05:30  Mæting í síðasta lagi á bryggju
kl 06:00  Lagt af stað til veiða frá Dalvíkurhöfn
kl14:00  Veiðum hætt, haldið til hafnar, kaffi, kakó og kleinur í boði félagsins þegar í land er komið.
19:00  Heimsókn í Bruggsmiðjuna á Árskógssandi.  Framleiðslan kynnt og dreypt á heinni, matgæðingar félagsins galdra fram eitthvað góðgæti.  ca 1,5-2 tímar.
Rútuferðir frá Akureyri (ÍSlandsbankaplani) kl 18:30 og Dalvík (Olís) kl 18:45 og heim að lokinni dagskrá.
Aflatölur dagsins verða byrtar á netinu. www.sjol.is og í nestiskassa daginn eftir.

Laugardagur 16. ágúst 2014
kl 05:30  Mæting í síðasta lagi á bryggju.
kl 06:00  Lagt af stað til veiða frá Dalvíkurhöfn.
kl 14:00  Veiðum hætt, haldið til hafnar, kaffi, kakó og kleinur í boði félagsins þegar í land er komið

SJALLINN. Lokahóf SjóÁk og Sjól.
kl 19:00 Húsið opnar
kl 10:30 Afmælishátiðin sett.
kl 19:45  Borðhald hefst.
Verðlaunaafhending hjá SjóAk
Verðlaunaafhending hjá Sjól
Heiðursveitingar SjóAk
kl 23:30  Mótsslit.

Mótgsgjald er kr. 15.000 og innifalinn er einn miði á lokahófið.  Aukamiði á lokahóf kostar kr. 5.000. 
Þáttaka tilkynnist til formanns þíns félags í síðasta lagi miðvikudaginn 6. ágúst 2014

Ný heimasíða kominn í loftið.

Ný heimasíða Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur er komin í loftið.

Það var koiminn tími nýja heimasíðu fyrir félagið  og hafa þeir félagar Sigurjón Lýðsson og Axel Þór Eysteinsson fært okkur nýja og glæsilega heimasíðu og kunnum við þeim okkar bestu þakkir fyrir.

Fjölmargar nýjungar eru á nýju síðunni má þar nefna tengingar við Facebook, Twitter og Instagram.  Nú þarf ekki annað en merkja @sjorek við Twitterfærslur og Instagram þá kemur það sjálfkrafa inn á síðuna okkar.

Það er von okkar í stjórn S.J.Ó.R. að  nýja heimasíðan muni nýtast okkur öllum vel og ef þið hafið einhverjar spurnigar hafið endilega samband við netstjóra í netfangið sjorek@outlook.com.