Sagan félagsins
Félagið var stofnað 10. maí 1961, og var stofnfundur haldinn á Hótel Borg. Fyrstu stjórn skipuðu; Halldór Snorrason, Agnar Gústafsson, Einar Ásgeirsson, Guðmundur E. Ólafsson og Magnús Valdimarsson.
Halldór Snorrason var kosinn fyrsti formaður félagsins. Árið 1969 lagðist starfsemin af um tíma, en félagið var endurvakið árið 1990 og Jónas Þór Jónasson kosinn formaður.
Anton Örn Kærnested fyrrverandi ritari félagsins hefur tekið saman fundargerðir frá stofnun til ársins 2011. Í tilefni 50 ára afmælis félagsins hafði hann veg og vanda af útgáfu fundargerðanna í bók. Einnig er hægt að skoða þær í PDF formi með því að smella hér.
Fundargerðirnar eru fróðlegar og skemmtileg lesning eins og sjá má á eftirfarandi :
Frá fundi 1.des. 1968. “ Sérstök ósk kom fram um það að barinn í Bolholti 4, yrði opnaður a.m.k. hálfri klukkustund fyrir fundarbyrjun. Var þessari tillögu fagnað „
11. jan. 1969. “ Fundarmenn telja að þessi fundur hafi tekist mjög vel. Menn komu þunglyndir til leiks, en gengu hallir af velli. Halldór þykir enn fremur þunglyndur, en von er til að Njáll vaki yfir velferð hans. Njáll mótmælir eindregið og segist fara að sofa. Nei, nei, segist ætla að halda vöku sinni, MAO segir ekki orð, enda ekki frásagnarhæfur eftir síðustu Pólar-ferð. Punktur.
Núverandi stjórn SJÓR
Nafn | Titill | Símanúmer | Netfang |
Lúther Einarsson | Formaður | 893 4007 | ljosafl@simnet.is |
Kjartan Gunnsteinsson | Varaformaður | 858 6219 | kjartang@mila.is |
Ágústa S. Þórðardóttir | Gjaldkeri | 893 4034 | gustath@simnet.is |
Marinó Njálsson | Ritari | 660 2000 | marino.njalsson@gmail.com |
Gilbert Ó. Guðjónsson | Meðstjórnandi | 893 3378 | gilbert@jswatch.com |
Þorgerður Einarsdóttir | Varamaður | 691 0554 | floraehf@gmail.com |
Einar Lúthersson | Varamaður | 866 7341 | eil1@hi.is |
Skoðunarmenn reikninga:
Örn Úlfar Andrésson
Svavar Svavarsson
Kennitala SJÓR
580269-2149
Hvernig er hægt að skrá sig í félagið?
Líkar viðLíkar við
Sæll. Þú gerir það með því að senda okkur (á þetta email) kennitölu, heimilisfang og síma. Við skráum þig inn og krafa fyrir félagsgjöldunum kemur í heimabankann bráðlega, 10.000 kr. Kveðja, Ágústa
Líkar viðLíkar við
Meinti auðvitað á sjorek@outlook.com 🙂
Líkar viðLíkar við