Stjórn SJÓR tók ákvörðun í gær um að fresta innanfélagsmótinu.
Félagsmönnum hefur verið sendur póstur þar sem farið er vel yfir stöðuna.
Farið vel með ykkur og hafið það sem best.
Stjórn SJÓR
Stjórn SJÓR tók ákvörðun í gær um að fresta innanfélagsmótinu.
Félagsmönnum hefur verið sendur póstur þar sem farið er vel yfir stöðuna.
Farið vel með ykkur og hafið það sem best.
Stjórn SJÓR
Kæru félagar,
Vegna veirunnar hafa nú þrjú félag þurft að fresta sínum aðalmótum;
SJÓSKIP (ætluðu að hafa sitt mót 27.–28. mars)
SJÓVE (sem vera átti 24.–25. apríl)
SJÓSNÆ (sem ætlaði að halda afmælismótið 22.–23. maí).
Öll þessi félög hafa hug á að halda sitt mót við fyrsta tækifæri og nýjar dagsetningar verða auglýstar um leið og þær verða ákveðnar.
Vonandi heilsast ykkur öllum vel og við óskum ykkur gleðilegrar páskahátíðar,
stjórn SJÓR
ATHUGIÐ! Báðum mótum SJÓSKIP sem vera áttu í mars hefur verið frestað vegna Covid-19. Nýjar dagsetningar verða auglýstar seinna.
Kæru félagar,
Seinasti skráningardagur fyrir SJÓSKIP er föstudagurinn 20. mars.
Sendið email á sjorek@outlook.com eða hringið í 893 4034, betra er fyrr en seinna.
Þessir keppendur eru skráðir núna:
Guðjón Hlöðversson
Marinó Njálsson
Pálmar Einarsson
Elín Snorradóttir
Lúther Einarsson
Kjartan Gunnsteinsson
Gilbert Ó. Guðjónsson
Kveðja, Ágústa
Sjóstangaveiðifélag Vestmannaeyja tilkynnir næsta aðalmót ársins
Fimmudagur 23. apríl
Kl. 20.00 Mótssetning í félagsheimili Sjóve
Föstudagur 24. apríl
Kl. 06.30 Mæting á smábátabryggju ( Viktartorgi )
Kl. 07.00 Haldið til veiða frá Smábátabryggju
Kl. 15.00 Veiðafæri dregin upp, og haldið til hafnar
Kl. 15.30 Löndun, hressing og fjör
Kl. 20.00 Aflaspjall og afrek dagsins rædd í félagsheimili Sjóve
Laugardagur 25. apríl
Kl. 05.30 Mæting á smábátabryggju ( Viktartorgi )
Kl. 06.00 Haldið til veiða frá Smábátabryggju
Kl. 14.00 Veiðafæri dregin upp, og haldið til hafnar
Kl. 14.30 Löndun og ennþá meira fjör
Kl. 20.00 Lokahóf í félagsheimili Sjóve
Mótsgjald er Kr 15.000.-
Innifalið í mótsgjaldi fyrir keppendur : Mótsgögn og gott skap. Kaffi og eða súpa við komuna í land á laugardag. Einn miði á lokahóf. Stakur miði á lokahóf er kr. 5.000.-
Lokaskráning er föstudaginn 17. apríl, kl. 20:00
Skráning
Þátttaka tilkynnist til formanns í þínu félagi og síðan mun ykkar formaður
tilkynna okkur ykkar þátttöku á heimasíðu Sjóve www.sjove.is
Nánari upplýngar
Formaður. Guðjón Örn Sigtryggson sími: 867 8490
Gjaldkeri. Ævar Þórisson sími: 896 8803
Kæru félagar,
það eru undarlegir tímar núna og daglegt líf farið úr skorðum hjá velflestum.
Þá er aldrei mikilvægara en áður að gera eitthvað skemmtilegt og halda settu striki eins og hægt er.
Hér kemur dagskráin að fyrsta móti sumarsins – hjá SJÓSKIP. Skiljanlega er þetta með öðru móti en venjulega og lokahófi og verðlaunaafhendingu er frestað í bili. En það er enginn sem bannar okkur að veiða fisk 🙂

Kæru félagsmenn.
Innanfélagsmót SJÓR er áætlað 2. maí n.k. og mótsstaðurinn verður Grundarfjörður.
Frekari upplýsingar koma þegar nær dregur.
Kveðja, stjórn SJÓR
Kæru félagar, á aðalfundinum 27. feb. s.l. tók við ný stjórn.
Hana skipa:
Ágústa S. Þórðardóttir, formaður
Kjartan Gunnsteinsson, varaformaður
Lúther Einarsson, gjaldkeri
Pálmar Einarsson, ritari
Elín Snorradóttir, meðstjórnandi
Gilbert Ó. Guðjónsson, varamaður
Einar Lúthersson, varamaður
Kveðja, stjórn SJÓR