Aðalmót SJÓSNÆ

Stjórn Snjósnæ býður ykkur velkomin á opna Sjósnæ mótið 19.-20. júní 2015

Samkvæmt reiknimeisturum félagsins er búist við brakandi blíðu og landburði af fiski báða dagana og hefur því verið ákveðið að bjóða þeim sem ekki treysta sér í mokið uppá 1 dags veiði og eru þeir beðnir um að gefa það upp við skráningu.Einnig biðjum við þá sem sjá sér ekki fært um njóta lokahófsins með okkur að gera slíkt hið sama. Annars er það von okkar að sjá sem flesta og fyrir þá sem eru í tegundatjútti  komu fram a.m.k 10 tegundir í kaffibolla aldraðrar konu sem ekki vill láta nafns síns getið.Kær kveðja stjórn Sjósnæ.

Miðvikudagur 17. júní kl 19.00
Hnýtingakvöld og þjóðhátíðastemming í félagsheimilinu og hver veit nema það verði jafnvel hnýtt í fánalitunum í tilefni dagsins.

Fimmtudagur 18. júní

kl.20.00  Mótssetning í húsnæði félagsins við           Ennisbraut.

Föstudagur 19. júní

kl. 05.30   Mæting á bryggju

kl. 06.00   Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00   Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar
               Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, 
               þegar komið er í land.

               Úrslit dagsins birtast á netinu. www.sjol.is

Laugardagur 20. júní

kl. 05.30   Mæting á bryggju

kl. 06.00   Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00   Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar
               Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, 
               þegar komið er í land.

kl. 19.30   Lokahóf.

Keppendur: 15.000  kr.

Stakur miði á lokahóf: 5.000 kr.

Innifalið fyrir keppendur:

• Mótsgjald • Mótsgögn • Nesti í keppni • kaffi við komu í land • Miðar í sund • Lokahóf.

Þátttökutilkynningar:

Félagar SJÓL tilkynni þátttöku sína  og maka síns til síns formanns í síðasta lagi mánudaginn 15. júní nk.
Sjósnæfélagar tilkynni þátttöku sína og maka til Jóns B. formanns í s. 891 7825, eða í netfangið
sjosnae@sjosnae.is  í síðasta lagi kl. 20 mánudaginn 15. júní nk.

Gistimöguleikar:

Tjaldsvæðið Ólafsvík, sími 436 1543

Hótel Ólafsvík, sími 436 1650 – www.hringhotels.is/hotel-olafsvik

Hótel Hellissandur, sími 430 8600 – www.hotelhellissandur.is

Ártún, Hellissandi, sími 845 1780 – http://artun.123.is

Virkið Rifi, sími 430 6660 – www.virkid.is

Nánari upplýsingar:

Sjósnæ: www.sjosnae.is

Formaður Sjósnæ, Jón B. Andrésson s. 891 7825. sjosnae@sjosnae.is
Ritari Sjósnæ, Gunnar Jónsson s. 895 6616.  sjosnae@sjosnae.is

Aðalmót SJÓR Patreksfirði 26. og 27. júní

Þá er komið að aðalmóti Sjóstangafélags Reykjavíkur sem haldið verður á Patreksfirði 26. og 27 júní.

Þáttökugjald er kr. 15.000,- sem greiðist við mótssetningu. Innifalið er miði á lokahóf, aukamiði kostar 5.000,-

Bent skal á að hægt er að taka ferjuna Baldur frá Stykkishólmi klukkan 9:00 og 15:45 á fimmtudeginum 25. júní og til baka frá Brjánslæk klukkan 12:15 og 19:00 á sunnudeginum 28. júní Panta þarf fyrir bíla í síma 433 2254.

Skráning Þáttaka tilkynnist á skáningarsíðu á heimasíðu SJÓR www.sjorek.is , með tölvupósti á sjorek@outlook.com  eða til formanns þíns félags í síðasta lagi miðvikudaginn 17. júní  2015 kl. 20:00. Síðan mun ykkar formaður tilkynna okkur þátttökuna sama dag. Eins dags veiði Samkvæmt þriðju grein laga S.J.Ó.L. verður boðð upp á eins dags veiði innan veiðitímabils. Veiðimaður sem skráir sig til veiði einn dag skal gera grein fyrir hvorn daginn hann vill veiða og mun mótstjórn reyna að verða fyrir óskum þeirra sem það kjósa.

Fyrir hönd Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur

Sjóstangaveiðimót dagana 26. og 27. júní 2015 á Patreksfirði

Mótsskrá Fimmtudagur 25. júní
Kl. 20.00         Kjötsúpa í félagsheimilinu.
Kl. 21.00         Mótið sett, skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf.

Föstudagur 26. júní
Kl. 05.30         Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum.
Kl. 06.00         Siglt á fengsæl mið.
Kl. 14.00         Veiði hætt og haldið til hafnar.
Kl. 19.30         Plokkfiskur í félagsheimilinu í boði SJÓR, þá verður farið yfir aflatölur dagsins.

Laugardagur 27. júní
Kl. 05.30         Mæting á bryggju.
Kl. 06.00         Haldið til veiða á ný.
Kl. 14.00         Haldið til hafnar.
Kl. 20.30         Lokahóf og verðlaunaafhending í félagshemilinu.

sjor

Aðalmót SJÓSKIP 29.-30. maí

Fjörið heldur áfram og boðar Sjóskip nú til þriðja aðalmóts sumarins.

Fimmtudagur 28. maí
Kl. 20:00 Mótssetning Vitakaffi. Skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf. Kaffi og meðlæti.

Föstudagur 29. maí
Kl. 05:30 Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum.
Kl. 06:00 Siglt á miðin.
Kl. 14:00 Veiði hætt og haldið til hafnar. Kaffi og meðlæti.
Kl. 19:30 Vitakaffi, farið yfir aflatölur dagsins.

Laugardagur 30. maí
Kl. 05:30 Mæting á bryggju.
Kl. 06:00 Haldið til veiða á ný.
Kl. 13:00 Veiði hætt og haldið til hafnar. Kaffi og meðlæti.
Kl. 20:00 Lokahóf og verðlaunaafhending á Vitakaffi.

Þátttökugjald kr. 15.000,- sem greiðist við mótssetningu. Aukamiði á lokahófið kr. 5.000,-

Skráning.
Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags sem tilkynnir í síðasta lagi keppendur síns félags þann 20. maí kl. 20:00.
Einnig er hægt að tilkynna þáttöku á netfangið sjoskip@sjoskip.is eða hafa beint samband við Jóhannes formann Sjóskips.
Mikilvægt er að tilkynna samhliða skráningu hvort keppandi þurfi aukamiða á lokahóf.

Ef það eru einhverjar spurningar varðandi mótið er hægt að hafa samband við Jóhannes í síma 860-0942

Innanfélagsmót Grundarfirði – Úrslit

Innanfélagsmót SJÓR var haldið laugardaginn 9. maí 2015.  29 veiðimenn héldu til veiða á 8 bátum.

Úrslit:
Aflahæsti karl
Ragnar Hafliðason 168 kg.
Pálmar Einarsson 128 kg.
Björn Júlíusson 119  kg.

Aflahæsta kona
Elín Snorradóttir 122 kg.
Guðrún Gíja Karlsdóttir 16 kg.
Ágústa S Þórðardóttir

Flestir fiskar
Gottskálk Jón Bjarnason 110,70 kg.
Kristján Tryggvason 94,51 kg.
Eyjólfur Gíslason 82,00 kg.

Flestar tegundir
Þorsteinn Einarsson 4
Björn Júlíusson 4
Gilbert Ó Guðjónsson 4

Stærsti Þorskur
Pálmar Einarsson 23,970 kg.
Ragnar Hafliðason 15,250 kg.
Vilhjálmur Þorláksson 14,050 kg.

Stærsti Ufsi
Smári Jónsson 2,220 kg.
Kristján Tryggvason 1,510 kg.
Sæmundur Gunnarsson 1,010 kg.

Stærsti Gullkarfi
Þorsteinn Stígsson 0,980 kg.
Björn Júlíusson 0,930 kg.
Konráð Guðmundsson 0,880 kg.

Stærsti Steinbítur
Gottskálk Jón Bjarnason 2,700 kg.

Stærsta Síld
Ragnar Hafliðason 0,390 kg.
Björn Júlíusson 0,370 kg.
Gilbert Ó Guðjónsson 0,370 kg.

Stærsti fiskur
Pálmar Einarsson 23,970 kg. Þorskur
Ragnar Hafliðason 15,250 kg.Þorskur
Vilhjálmur Þorláksson 14,050 kg. Þorskur

 

Aðalmóti SJÓR frestað til 26.-27 júní

Vegna yfirvofandi verkfalls hefur verið ákveðið að fresta aðalmóti SJÓR sem átti að vera á Patreksfirði til 15. – 16. maí til daganna 26. og 27 júní.
Þeir sem hafa skráð sig á mótið eru vinsamlegast beðnir um að afbóka gistingu og bóka gistingu á nýrri dagsetningu.

Opnað verður fyrir skráningu á mótið upp í byrjun júní og eru veiðimenn beðnir um að skrá sig þá aftur til veiði.

Hér að neðan er listi yfir gistimöguleika og eru þeir veiðimenn sem ætla að koma hvattir til að tryggja sér gistingu sem fyrst.

GISTIMÖGULEIKAR Á PATREKSFIRÐI
Ráðagerði Hostel
Aðalstræti 31,
450 Patreksfirði,
sími 456 0181
www.radagerdi.com
stay@radagerdi.com

Fosshótel
Aðalstræti 100,
450 Patreksfirði,
sími 456 2004
vestfirdir@fosshotel.is
www.fosshotel.is

Stekkaból gistiheimili
Stekkum 19 og 21,
450 Patreksfirði,
sími 864 9675,
stekkabol@snerpa.is
www.stekkabol.is

Hótel West
Aðalstræti 62,
450 Patreksfirði,
sími 892 3414,
stay@hotelwest.is
www.hotelwest.is

Gistiheimilið Bjarmaland
Baugatúni 8
460  Tálknafirði
Sími 891 8038
Aðeins er um 15 mín. akstur milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar.

Tjaldsvæði
Tjaldsvæði er hjá félagsheimilinu ahaldahus@vesturbyggd.is www.tjalda.is/patreksfjordur

Aðalmót SJÓR Patreksfirði 15.-16. maí

Þá er komið að aðalmóti Sjóstangafélags Reykjavíkur sem haldið verður á Patreksfirði 15. og 16 maí.

Þáttökugjald er kr. 15.000,- sem greiðist við mótssetningu.
Innifalið er miði á lokahóf, aukamiði kostar 5.000,-

Bent skal á að hægt er að taka ferjuna Baldur frá Stykkishólmi klukkan 15:00 á fimmtudeginum 14. maí og til baka frá Brjánslæk klukkan 18:00 á sunnudeginum 17. mai. Panta þarf fyrir bíla í síma 433 2254.

 Skráning
Þáttaka tilkynnist á skáningarsíðu á heimasíðu SJÓR www.sjorek.is , með tölvupósti á sjorek@outlook.com  eða til formanns þíns félags í síðasta lagi miðvikudaginn 6. maí 2015 kl. 20:00. Síðan mun ykkar formaður tilkynna okkur þátttökuna sama dag.
Eins dags veiði
Samkvæmt þriðju grein laga S.J.Ó.L. verður boðð upp á eins dags veiði innan veiðitímabils. Veiðimaður sem skráir sig til veiði einn dag skal gera grein fyrir hvorn daginn hann vill veiða og mun mótstjórn reyna að verða fyrir óskum þeirra sem það kjósa.

Fyrir hönd Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur

Sjóstangaveiðimót dagana 15. og 16. maí 2015 á Patreksfirði

Mótsskrá
Fimmtudagur 14. maí
Kl. 20.00         Kjötsúpa í félagsheimilinu.
Kl. 21.00         Mótið sett, skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf.

Föstudagur 15. maí
Kl. 05.30         Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum.
Kl. 06.00         Siglt á fengsæl mið.
Kl. 14.00         Veiði hætt og haldið til hafnar.
Kl. 19.30         Plokkfiskur í félagsheimilinu í boði SJÓR, þá verður farið yfir aflatölur dagsins.

Laugardagur 16. maí
Kl. 05.30         Mæting á bryggju.
Kl. 06.00         Haldið til veiða á ný.
Kl. 14.00         Haldið til hafnar.
Kl. 20.30         Lokahóf og verðlaunaafhending í félagshemilinu.