Lokahóf SJÓL

Sú ákvörðun var tekin á síðasta ári á aðalfundi Landsambandsins að breyta út af þeirri gömlu hefð að lokahóf SJÓL væri haldi á sama kvöldi og síðasta mótinu lyki. Þess í stað var ákveðið að halda veglega árshátíð / Lokahóf þann 31 . okt 2015 með pompi og prakt þar sem allt Sjóstangaveiðifólk kæmi saman og ætti frábæra kvöldstund ( úthvílt og ekki með sjóriðu ) .
Skipuð var nefnd með fulltrúa frá hverju félagi til að skipuleggja hið glæsilega kvöld. Ég vil hvetja ALLA !!! SJÓR félaga til að mæta hvort sem þeir hafi verið að veiða eða ekki til að koma og hitta allt þetta frábæra sjóstangaveiði fólk og eiga saman frábært kvöld (nefndin lofar frábærri skemmtun)

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst til ykkar formanns Elínar Snorradóttur elinsnorra@gmail.com eða í síma 664 3109 síðasti skráningardagur er 26. Okt.2015

 

Árshátíð / Lokahóf 31. Okt. 2015 í Iðusölum Lækjargötu 2

Húsið opnar kl. 18:00 með fordrykk í neðri sal

Borðhald hefst kl. 19:30 í efri sal.

Matseðill.

Forréttur – Humarhalar

Aðalréttur – Nautalund með Bearnaise sósu

Eftirréttur – Skyrterta með tilheyrandi

Ef einhver er með ofnæmi fyrir einhverju af ofangreindu t.d. humrinum, vinsamlegast sendið stjórn nafn viðkomandi  svo hægt sé að finna annan rétt fyrir hann.

Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá sem inniheldur skemmtiatriði og verðlaunaafhendingu .

Miðaverð er 9.500 kr ( Fordrykkur og þriggja rétta máltíð ) .

Vonast til að sjá ykkur sem flest og eigum glæsilega og skemmtilega kvöldstund saman .

Framkvæmdir við nýju Höllina

Margar hendur vinna létt verk.

Nú er kominn tími til að koma nýju Höllinni félagsheimili SJÓR Grandagarði 18 í stand.

Veiðifélagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í að gera nýtt og glæsilegt félagsheimili okkar að góðum stað fyrir félagsstarf okkar á komandi árum.

Framkvæmdir hefjast mánudaginn 28. september kl 19:30 ætlum við að taka næstu kvöld á eftir í verkið

Aðalmót SJÓAK

Nú er komið að Akureyrarmóti í sjóstöng.

sjoakNæst síðasta mótið í mótaröðinni 2015 verður hjá SJÓAK að þessu sinni. Spennan í Íslandsmótinu er í algleymingi og nú fer hver að verða síðastur að safna stigum. Róið er frá Dalvík báða dagana. Keppt verður í blönduðum sveitum. Boðið verður upp á eins dags veiði fyrir veiðimenn ef næg þátttaka fæst . Þeir sem kjósa eins dags veiði verður úthlutað veiðidegi í samræmi við óskir þeirra ef mögulegt er.

Mótsskrá

Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Kl. 20:00 Sjallinn, súpa í boði SjóAk, að hætti Önnu Ívarsdóttur.
Kl. 20:30 Mótssetning í Sjallanum Akureyri. Þátttakendur boðnir velkomnir og mótsgögn afhent.

Föstudagur 14. ágúst 2015
Kl. 05:30 Mæting í síðasta lagi á bryggju.
Kl. 06:00 Lagt af stað til veiða frá Dalvíkurhöfn.
Kl. 14:00 Veiðum hætt, haldið til hafnar, heitt kaffi, kakó og bakkelsi bíður þín á bryggjunni.

Aflatölur dagsins verða birtar á netinu, http://www.sjol.is og í nestiskassa daginn eftir

Laugardagur 15. ágúst 2015
Kl. 05:30 Mæting í síðasta lagi á bryggju.
Kl. 06:00 Lagt af stað til veiða frá Dalvíkurhöfn.
Kl. 14:00 Veiðum hætt, haldið til hafnar, heitt kaffi, kakó og bakkelsi bíður þín á bryggjunni.

SJALLINN. Lokahóf SjóAk
Kl. 20:00 Húsið opnar.
Kl. 20:30 Hátíðin sett.
Kl. 20:45 Borðhald hefst.
Verðlaunaafhending hjá SjóAk.
Mótsslit.
Kl. 23:00 Dansað inn í nóttina.

Mótsgjald er kr. 15.000,- og innifalinn er einn miði á lokahófið. Aukamiði á lokahóf kostar kr. 5.000,-.

Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags í síðasta lagi miðvikudaginn 5. ágúst 2015

Gisting:

Gistimöguleikar á Dalvík eru:
Vegamót: Hagstæð gisting í smáhýsum, gestahúsi og gistiheimili, svefnpokapláss og uppábúin rúm, sími 865-8391
Fosshótel Dalvík sími: 466-3395.
Einnig minnum við á að á Akureyri er fjöldinn allur af gistimöguleikum.

Við viljum benda sjóstangaveiðifólki á að sum stéttarfélög greiða niður gistingu fyrir félagsmenn sína með

svokölluðum gistimiðum. Athugaðu hvort þitt stéttarfélag geri slíkt og þá verður gistingin ennþá ódýrari.

Rúta:

Rúta á lokahóf frá Dalvík kl. 18:55 á Árskógssandi kl. 19:10 (fer 19:20) og á Hauganesi kl. 19:25 (fer 19:35). Rútan fer til baka kl. 00.30

 

 

Aðalmót Sjósigl

Opna sjóstangaveiðimótið „SJÓSIGL 2015“ verður haldið  24.-25. júlí  n.k.

Mótið verður sett í Allanum, fimmtudaginn  23. júlí kl. 20.00.

Létt máltið í boði Sjósigl.

Dagskrá:

Föstudagur 24.júlí  kl. 06.00:

Haldið til hafs og veitt til kl. 14.00.

Farið yfir aflatölur í Allanum gluggabar um kvöldið kl. 20.30

Laugardagur 25.júlí  kl. 06.00:   Haldið til hafs á ný og veitt til kl. 14.00

 

Lokahóf verður haldið í Allanum laugard. 25.júlí og hefst kl. 20.

Kvöldverður og verðlaunaafhending.

 

Mótsgjald er kr. 15.000 með miða á lokahóf. Aukamiði kostar kr. 5.000

 

Skráning:

Skráning félaga í Sjósigl fer fram hjá formanni, Herði Þór Hjálmarssyni., sími 867-7497.  Aðrir tilkynna þátttöku til síns formanns, sem sér um skráningu til Sjósigl.

Netfang  skráningar er evahh@internet.is

Munið að tilkynna þátttöku í síðasta lagi þriðjudag. 14.júlí kl. 20.

 

Gistimöguleikar:

Gistiheimilið Hvanneyri:  Sími 467-1506  864-1850   http://www.hvanneyri.com

The Herring Guesthouse Sími 868-4200      www.theherringhouse.com

Siglunes Guesthouse  Sími 467-1222  6599699    www.hotelsiglunes.is

Einnig eru gistimöguleikar í Ólafsfirði:

Hótel Brimnes, Sími 466  2400

Tröllakot, Sími 466 2600

 

Aðalmót Sjósigl og Sjónes

Kæru SJÓR félagar aðalmót Sjónes (lokadagur skráningar 8 júlí) og Sjósigl (lokadagur skráningar 14 júlí ) hafa nú verið auglýst á síðunum þeirra sjones.123.is og sjosigl.123.is. Endilega kynnið ykkur dagskrána og síðasta skráningadag á þessi mót og tilkynnið svo þáttöku á Elínu formann 6643109

 

Aðalmóti SJÓR á Patreksfirði lokið

Aðalmót SJÓR fór fram dagana 26. og 27. júní í blíðskaparveðri.  Alls tóku 29 keppendur þátt á 7 bátum.

Helstu úrslit mótsins voru eftirfarandi.

Aflahæsti karl
Gunnar Magnússon Sjósigl
Skúli Már Matthíasson Sjóskip 
Hersir Gíslason Sjór 

Aflahæsta kona
Elín Snorradóttir Sjór
Dröfn Árnadóttir Sjór
Þorgerður Einarsdóttir Sjór

Flestir fiskar Kristján Tryggvason Sjór

Flestar tegundir Arnar Eyþórsson Sjóak

Stærsti Þorskur Elín Snorradóttir Sjór

Stærsta Ýsa  Dröfn Árnadóttir Sjór

Stærsti Ufsi Gísli Már Gíslason Sjór 3

Stærsti Gullkarfi Þorgerður Einarsdóttir Sjór

Stærsti Steinbítur Arnar Eyþórsson Sjóak

Stærsti Sandkoli Þorgerður Einarsdóttir Sjór

Stærsti Marhnútur Þorgerður Einarsdóttir Sjór

Stærsta Skarkoli Arnar Eyþórsson

Nánari upplýsingar um úrslit má sjá hér. http://www.sjol.is/sjol/x/pCmp?c=151