Aðalmót SJÓAK

Nú er komið að Akureyrarmóti í sjóstöng.

sjoakNæst síðasta mótið í mótaröðinni 2015 verður hjá SJÓAK að þessu sinni. Spennan í Íslandsmótinu er í algleymingi og nú fer hver að verða síðastur að safna stigum. Róið er frá Dalvík báða dagana. Keppt verður í blönduðum sveitum. Boðið verður upp á eins dags veiði fyrir veiðimenn ef næg þátttaka fæst . Þeir sem kjósa eins dags veiði verður úthlutað veiðidegi í samræmi við óskir þeirra ef mögulegt er.

Mótsskrá

Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Kl. 20:00 Sjallinn, súpa í boði SjóAk, að hætti Önnu Ívarsdóttur.
Kl. 20:30 Mótssetning í Sjallanum Akureyri. Þátttakendur boðnir velkomnir og mótsgögn afhent.

Föstudagur 14. ágúst 2015
Kl. 05:30 Mæting í síðasta lagi á bryggju.
Kl. 06:00 Lagt af stað til veiða frá Dalvíkurhöfn.
Kl. 14:00 Veiðum hætt, haldið til hafnar, heitt kaffi, kakó og bakkelsi bíður þín á bryggjunni.

Aflatölur dagsins verða birtar á netinu, http://www.sjol.is og í nestiskassa daginn eftir

Laugardagur 15. ágúst 2015
Kl. 05:30 Mæting í síðasta lagi á bryggju.
Kl. 06:00 Lagt af stað til veiða frá Dalvíkurhöfn.
Kl. 14:00 Veiðum hætt, haldið til hafnar, heitt kaffi, kakó og bakkelsi bíður þín á bryggjunni.

SJALLINN. Lokahóf SjóAk
Kl. 20:00 Húsið opnar.
Kl. 20:30 Hátíðin sett.
Kl. 20:45 Borðhald hefst.
Verðlaunaafhending hjá SjóAk.
Mótsslit.
Kl. 23:00 Dansað inn í nóttina.

Mótsgjald er kr. 15.000,- og innifalinn er einn miði á lokahófið. Aukamiði á lokahóf kostar kr. 5.000,-.

Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags í síðasta lagi miðvikudaginn 5. ágúst 2015

Gisting:

Gistimöguleikar á Dalvík eru:
Vegamót: Hagstæð gisting í smáhýsum, gestahúsi og gistiheimili, svefnpokapláss og uppábúin rúm, sími 865-8391
Fosshótel Dalvík sími: 466-3395.
Einnig minnum við á að á Akureyri er fjöldinn allur af gistimöguleikum.

Við viljum benda sjóstangaveiðifólki á að sum stéttarfélög greiða niður gistingu fyrir félagsmenn sína með

svokölluðum gistimiðum. Athugaðu hvort þitt stéttarfélag geri slíkt og þá verður gistingin ennþá ódýrari.

Rúta:

Rúta á lokahóf frá Dalvík kl. 18:55 á Árskógssandi kl. 19:10 (fer 19:20) og á Hauganesi kl. 19:25 (fer 19:35). Rútan fer til baka kl. 00.30

 

 

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s