Það er ekki amalegt að fá þetta veganesti inní Aðalmót SJÓSKIP sem fram fer um helgina.
http://www.ruv.is/frett/reglugerd-til-lausnar-deilu-um-sjostangaveidi
Það er ekki amalegt að fá þetta veganesti inní Aðalmót SJÓSKIP sem fram fer um helgina.
http://www.ruv.is/frett/reglugerd-til-lausnar-deilu-um-sjostangaveidi
Opið hús í Höllinni næsta þriðjudag, kl. 20:00 – í tilefni Aðalmóts SJÓSKIP sem haldið verður 23.–24. mars nk.
Aðalmót SJÓSKIP verður haldið 23.–24. mars nk.
Félagsmenn eru hvattir til að skrá sig undir flipanum „SKRÁNING Á MÓT“ hér á síðunni.
Einnig er hægt að senda póst á sjorek@outlook.com eða hringja í Hersir: 865 4053.
Skráningarfrestur rennur út kl. 12, þann 19. mars.
—————————————————————————————————————————————–
DAGSKRÁ MÓTS:
Fimmtudagur 22. mars
Kl. 20:00 Mótssetning verður á Fiskmarkaðnum, Faxabraut 7
Skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf.
Föstudagur 23. mars
Kl. 05:30 Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum
Kl. 06:00 Siglt á miðin
Kl. 14:00 Veiði hætt og haldið til hafnar
Aflatölur fyrri dags verða birtar á sjol.is og við bryggju daginn eftir.
Laugardagur 24. ágúst
Kl. 05:30 Mæting á bryggju
Kl. 06:00 Haldið til veiða á ný
Kl. 13:00 Veiði hætt og haldið til hafnar
Kl. 20:00 Lokahóf og verðlaunaafhending: Gamla Kaupfélagið, Kirkjubraut 11
Ekki verður boðið uppá nesti um borð í bátum en drykkjarvatn verður um borð.
Undirmál Þorsks og Ufsa eru 50 cm. Ekkert undirmál fyrir aðrar tegundir.
Þátttökugjald kr. 15.000,-
Greiðist við mótssetningu eða inná reikning Sjóskips kt. 490894-2099. 552-26-2831
Aukamiði á lokahófið 5.000 kr.
——————————————————————————————————————————
Svo skemmtilega vill til að Kótelettukvöldið okkar og aðalfundur SJÓL verða hvoru tveggja á laugardaginn í Höllinni. Hvað gæti verið betri endir á góðum degi en gómsæt kóteletta??
Skráið ykkur sem fyrst hérna: https://sjorek.is/vidburdir/
Kæru félagar.
Nú sytttist í kótelettukvöldið. Það verður laugardaginn 10. mars n.k. í Höllinni okkar að Grandagarði.
Kótelettumeistarar félagsins munu reiða fram glæsilega veislu af sinni alkunnu snilld.
Húsið opnar kl 18:00 og borðhald hefst kl 19:00.
Veislan kostar aðeins 3.000 kr. á mann og drykkir á sanngjörnu SJÓR-verði.Félagar eru hvattir til að taka með sér gesti.
Vekjum athygli á að EKKI verður posi á staðnum.
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir miðvikudaginn 7. mars.
Skráning er á skráningarsíðu á heimasíðu SJÓR á netfangið sjorek@outlook.com

Kæru félagar og aðrir velunnarar SJÓR.
Við höldum okkar þorrablót 13. janúar n.k. og vonumst svo sannarlega til að sjá ykkur sem flest.
Það er tilvalið að starta Þorranum á glæsilegan hátt, hitta gamla kunningja úr „bransanum“, fá sér gott í gogginn og hafa gaman. Ef einhvern tímann var þörf á því – þá er það núna.
Eins og venjulega verður fjörugt happdrætti með glæsilegum vinningum.
Hvetjum félagsmenn til að taka með sér gesti.
Húsið opnar kl. 19 og borðhald hefst um kl. 20.
Miðaverð: 5.000 kr.
Barinn verður opinn og posi á staðnum.
Hægt er að senda skráningu póst á sjorek@outlook.com eða nota formið hér fyrir neðan.
Einnig er hægt að senda skilaboð á Facebook.
Skráningu lýkur að kvöldi 10. janúar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest – helst öll!
Kveðja, stjórn SJÓR
Okkar kæri heiðursfélagi Halldór Þórðason er látinn. Halldór var virkur félagi og mikill veiðimaður og verður hans sárt saknað. Hann var fæddur 8. ágúst 1925 og tilheyrði hinni rómuðu „unglingadeild“ innan SJÓR, ásamt þeim Friðleifi og Ólafi. Það var nú oft glatt á hjalla hjá þeim félögum í veiðitúrunum og gáfu þeim sem yngri voru ekkert eftir í veiðinni.
Við félagar í Sjóstangaveiðifélagi Reykjavíkur vottum fjölskyldu Halldórs okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Laugardagskvöldið 21. október verður gott kvöld því þá blæs SJÓR til sinnar bragðgóðu og skemmtilegu sviðaveislu í Höllinni, félagsheimili SJÓR Grandagarði 18.
Veiðifélagar eru eru hvattir til að mæta, taka með sér gesti og njóta góðra veitinga í frábærum félagsskap.
Borðhald hefst kl. 20:00
Aðgangur 3.500
Lokadagur skráningar er miðvikudagurinn 18. okt.
Vinsamlegast skráið þátttöku á heimasíðu SJÓR www.svidaveislan eða í netfangið sjorek@outlook.com

