Veiðidagar sumarið 2016

Hér eru veiðidagar fyrir sumarið 2016.   Veiðimenn eru hvattir til að huga að gistingu sem fyrst.

Félag Aðalmót Staður Innanfélagsmót Staður
Sjóve 6-7 maí Vestmannaeyjar

21.maí

Vestmannaeyjar
Sjór 17-18 júní Patreksfjörður

21.maí

Grundarfjörður
Sjóskip 27-28 maí Akranes

19.mar

Akranes
Sjósnæ 24-25 júní Ólafsvík

30.apr

Rif
Sjónes 15-16 júlí Neskaupsstaður

28.ágú

Neskaupsstaður
Sjósigl 1-2 júlí Siglufjörður

11.jún

Siglufjörður
Sjóak 12-13 ágúst Dalvík

9.júl

Grímsey

Þorrablót SJÓR

Þorrinn nálgast og kominn tími á hið árlega þorrablót SJÓR.

Þorrablótið verður haldið í félagsheimilinu okkar Höllinni Grandagarði 18 laugardaginn 16. janúar.  Húsið opnar 19:00 og borðhald hefst 20:00.

SJÓR heldur aðeins eitt þorrablót á ári og það vill enginn SJÓR félagi missa af því. Takið með ykkur gesti.
Frábær þorramatur, skemmtiatriði og happadrætti.

Verð aðeins 5.000,-

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir þriðjudaginn 12. janúar.
Skráning er á heimasíðu SJÓR á netfanginu sjorek@outlook.com eða í símum 845 6556  Smári eða 892 0890 Gottskálk

Jólakveðja

Stjórn SJÓR óskar félagsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra sem og öllu sjóstangaveiði fólki , samstarfsmönnum,skipstjórum og styrktaraðilum um land allt  gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir allar góðu samverustundirnar á árinu sem er að líða.

Fyrir hönd stjórnar SJÓR
Elín Snorradóttir Formaður

sjorjol

 

Kótelettukvöld

Kótelettukvöld Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldið í nýju og glæsilegu félagsheimili okkar, Höllinni Grandagarði 18, laugardaginn 14. nóvember.

Kótelettumeistarar félagsins munu reiða fram glæsilega veislu af sinni alkunnu snilld.

Þetta er kjörið tækifæri til að skoða nýtt og glæsilegt félagsheimili okkar og njóta góðra veitinga í góðra vina hóp.  Félagar eru hvattir til að taka með sér gesti sem þeir vilja kynna fyrir félaginu.

Húsið opnar kl 18:00 og borðhald hefst kl 19:00.

Veislan kostar aðeins kt. 3.000,- á mann og drykkir á sanngjörnu SJÓR verði.

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir þriðjudaginn 10. nóvember.
Skráning er á skráningarsíðu á heimasíðu SJÓR á netfangið sjorek@outlook.com eða í símum 892 0890 Gottskálk eða 845 6556  Smári.

 

Vetrardagskrá

Nú þegar nýja Höllin okkar á Grandagarði er tilbúinn verður blásið til glæsilegrar vetrardagskrár.

Laugardag 14. nóvember 2015  Kótelettukvöld
Föstudagur 4. desember 2015  Jólaglögg
Laugadagur 16. janúar 2016  Þorrablót
Föstudagur 26. febrúar 2016 Aðalfundur SJÓR

Takið dagana frá
Viðburðirnir verða auglýstir nánar þegar nær dregur.