Kær veiðifélagi og vinur Ólafur Ólafsson er látinn á nítugasta aldursári

Ólafur var fæddur 23.06.1926 og fagnaði 90 ára afmæli ásamt nánustu vinum og fjölskyldu í júní s.l. hann var virkur félagsmaður Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur um áratuga skeið hans verður sárt saknað af okkur félögunum hjá SJÓR og þökkum við fyrir allar góðu samverustundirnar og veiðiferðirnar sem við áttum saman .
Ólafur lést á Droplaugarstöðum þann 10.07.2016 og hefur útförin farið fram í kyrrþey .

Opið mót SJÓSNÆ

Þá er loksins komið að hinu stórskemmtilega opna móti Sjósnæ sem beðið hefur verið eftir í heilt ár.
(Og mánuði betur)

Reynt verður bjóða upp á eins dags keppni verði því við komið.Vonum bara að veiði og veður verði met besta móti og að við sjáum sem flesta.Kær kveðja stjórn Sjósnæ.

Fimmtudagur 21. júní

kl.20.00  Mótssetning í húsnæði félagsins við Ennisbraut 1 .Súpa og brauð og kaffi.

Föstudagur 22. júní

kl. 05.30   Mæting á bryggju

kl. 06.00   Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00   Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, þegar komið er í land.

kl.20.00    Farið yfir aflatölur fyrri dags í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1

Laugardagur 24. júní

kl. 05.30   Mæting á bryggju

kl. 06.00   Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00   Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.  Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, þegar komið er í land.

kl. 19.00    Lokahóf í Björgunarsveitarhúsinu á Rifi.

Keppendur: 15.000  kr.

Stakur miði á lokahóf: 5.000 kr.

Innifalið fyrir keppendur:

Mótsgögn • Nesti í keppni • kaffi við komu í land • Miðar í sund • Lokahóf.

Þátttökutilkynningar:

Félagar SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns í síðasta lagi Sunnudaginn 17. júlí nk.
Sjósnæfélagar tilkynni þátttöku sína og Jóns B. formanns í s. 891 7825, eða í netfangið haarif
@simnet.is  í síðasta lagi kl. 20 Sunnudaginn 17. júlí nk.

Gistimöguleikar:

Tjaldsvæðið Ólafsvík, sími 436 1543

Nánari upplýsingar:

Ritari Sjósnæ, Gunnar Jónsson s. 895 6616

Sjósnæ: www.sjosnae.is

Aðalmót SJÓNES

Þá er komið að Aðalmóti SjóNes sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils.

Fimmtudagur 14. júlí.

Mótið verður sett og mótsgögn afhent í Hótel Egilsbúð fundarsal  kl. 20:00.

Léttar veitingar í boði Sjónes.


Föstudagur 15. júlí.

Lagt úr höfn kl. 6:00 og veiðum hætt kl. 14:00. 

Kaffi og brauð á bryggjunni.

Frítt í sund báða daganna.

Kl. 20:30 farið yfir tölur dagsins, í Hótel Egilsbúð.

Laugardagur 16. júlí.

Lagt úr höfn kl. 6:00 og veiðum hætt kl. 13:00.

Kl  14:00  Tekið verður á móti keppendum, mökum,og  skipstjórum,  með kaffi,og kökum  á löndunarstað.
Kl. 19:00  opnar Hótel Egilsbúð
Kl 20:00  hefst lokahófið með þriggja rétta  veislumáltíð og verðlaunaafhendingu.

 

Í mótinu verða blandaðar sveitir karla og kvenna.

Mótsgjald er 15.000.- krónur,  og innifalið miði  á lokahófið, aukamiði kostar 5.000.-

Gistimöguleikar.

Tónspil herbergi  :   Sími :   477 1580 – 894 1580   Pétur.

Hótel Egilsbúð     :   Sími     865 5868   hildibrand@hildibrand.com

Hótel Capitano     :   Sími    477 1800 – 861 4747   Sveinn.

Hildibrand Hótel  :   Sími    865  5868 – hildibrand@hildibrand.com

Gistiheimilið Siggi Nobb.     477 1800 – 861 4747   Sveinn.

Bændagistingin  Skorrahestar    :  Sími  477 1736 – 8918036

Hótel Edda           :   Sími    444 4860

Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags, sem mun svo tilkynna okkur um þátttöku þína, í síðasta lagi miðvikudaginn 6. júlí.

Matthías ( sími: 477 1663 , 848 7259 )    Kári (sími: 477 1512 , 860 7112 )

sjones

 

Kynningar og nýliðakvöld SJÓR

Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur stendur fyrir kynningar- og nýliðakvöldi  föstudaginn 8. júlí. 

Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér sjóstangaveiði.  Farið verður í kvöldsiglingu með bát Sea Adventures, rennt fyrir fisk, aflinn grillaður og snæddur.

SJÓR félagar eru hvattir til að taka með sér vini og fjölskyldumeðlimi sem hafa áhuga á að kynna sér félagsskapinn.

30 pláss eru í boði og kostar 5.000 kr. á mann.

Skráning er á viðburðir á heimasíðu sjorek.is eða á netfangið sjorek@outlook.com

 

Aðalmóti SJÓR á Patreksfirði lokið

Aðalmót SJÓR var haldið dagana 17.- og 18. júní við bestu aðstæður í frábæru veðri.

Helstu úrslit voru:

Aflahæsti karl 1 Pétur Sigurðsson Sjóak 1737,00
12 Guðbjartur G. Gissurarson Sjór 1651,00
29 Þiðrik Hrannar Unason Sjósigl 1600,00
Aflahæsta kona 5 Ágústa S Þórðardóttir Sjór 852,00
8 Elín Snorradóttir Sjór 845,00
2 Dröfn Árnadóttir Sjór 473,00
Flestir fiskar 12 Guðbjartur G. Gissurarson Sjór 826
1 Pétur Sigurðsson Sjóak 813
27 Þorsteinn Einarsson Sjór 702
Flestar tegundir 23 Stefán Guðjónsson Sjór 5
7 Einar Helgason Sjór 5
3 Stefán Baldvin Sigurðsson Sjóak 4
Stærsti Þorskur 32 Johannes Marian Simonsen Sjóskip  11,690
2 Dröfn Árnadóttir Sjór  11,300
16 Kjartan Gunnsteinsson Sjór  10,600
Stærsta Ýsa 7 Einar Helgason Sjór  0,980
23 Stefán Guðjónsson Sjór  0,980
Stærsti Ufsi 12 Guðbjartur G. Gissurarson Sjór  9,300
34 Sigurjón Már Birgisson Sjóskip  2,640
9 Gilbert Ó Guðjónsson Sjór  1,530
Stærsti Steinbítur 17 Kristján Tryggvason Sjór  7,040
3 Stefán Baldvin Sigurðsson Sjóak  6,440
23 Stefán Guðjónsson Sjór  4,820
Stærsti Sandkoli 7 Einar Helgason Sjór  0,470
18 Lúther Einarsson Sjór  0,430
32 Johannes Marian Simonsen Sjóskip  0,420
Stærsta Sandsíli 13 Guðjón H Hlöðversson Sjór  0,010
Stærsti fiskur 32 Johannes Marian Simonsen Sjóskip 11,690 Þorskur
2 Dröfn Árnadóttir Sjór 11,300 Þorskur
16 Kjartan Gunnsteinsson Sjór 10,600 Þorskur

Nánari upplýsingar um úrslitin má sjá á heimasíðu SJÓL.

Aðalmót SJÓSIGL

Þáttökugjald er kr. 15.000,- og greiðist við mótsetningu.
Innifalið í þáttökugjaldi er miði á lokahófið, Mótsgögn og nesti í keppni.
Aukamiði á lokahófið kostar kr. 5.000,-

Fimmtudagur 30. júní
Kl. 20:00  Mótssetning á Allanum gluggabar. Létt máltíð í boði Sjósigl.

Föstudagur 1. júlí
Kl. 05:30   Mæting á bryggju
Kl. 06:00   Haldið til veiða
Kl. 14:00   Veiði hætt og haldið til hafnar
Kl. 20:30   Farið yfir aflatölur dagsins á Allanum gluggabar

Laugardagur 2. júlí
Kl. 05:30   Mæting á bryggju
Kl. 06:00   Haldið til veiða
Kl. 14:00   Veiði hætt og haldið til hafnar
Kl. 20:00   Lokahóf mótsins á Allanum gluggabar

Félagar SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns í síðasta lagi miðvikudaginn
22. júní nk.  kl. 20:00

Aðalmót SJÓSNÆ

Stjórn Snjósnæ býður ykkur velkomin á opna Sjósnæ mótið 24.-25. júní
2016

Þá er loksins komið að hinu stórskemmtilega opna móti Sjósnæ sem beðið
hefur verið eftir í heilt ár. Reynt verður bjóða upp á 1dags keppni
verði því við komið.Annars er í vændum spennandi mót ef marka má Völvu
félagsins sem hefur marga fjöruna sopið.   Við tyllum okkur niður með
kaffibolla og reykkelsið fyllir vitin um leið og hún rýfur upp stokk af
tarot-spilum sem hún hrærir í af áfergju og gýtur til mín þessum augum
sem sjá í gegnum holt og hæðir um leið og hún veiðir uppúr mér hvar og
hvenær þetta mót skuli haldið og er ég ekki fyrr búinn að sleppa orði en
hún sér öldugang en vill ekki meina að veðrið sé slæmt heldur sé þetta
meira eins veðrið sé gengið niður og öldurnar lægji nú líka eftir því
sem líði á morguninn annars sé þetta skaplegasta veiði-veður ekki mikil
sól og svo kemur hann nú til með að rigna fyrripart seinni dags en endar
daginn bara með sól og blíðu.Aflabrögð verða með ágætum segir hún en það
er eins og hann komi í gusum ,veiðist vel á meðan er en dettur niður á
milli og mikilvægt að menn detti ekki í leiðindi því fyrr en varir rýkur
fiskiríð upp aftur.Mér sýnist eins og nýliðum og þeim sem ekki hafa
stundað sportið af kappi gangi jafnvel betur þeim en telja sig vita
betur og á það sérlega við um þá sem hugsa út fyrir rammann og þora að
leita nýrra leiða,hér er eitthvað met segir hún með undrunarsvip sem
umhverfist í grettu um leið og hún tjáir mér að sjaldgæfur fiskur muni
veiðast en ófrýnilegur sé hann.Þegar ég reyni að fá upplýsingar um
fjölda tegunda vill hún lítið láta uppi annað en að það komi tía og
fjarki en mótið eigi þegar upp er staðið eftir að verða eftirminnilegt
og allir glaðir.

Miðvikudagur 22. júní kl 20.00
Hnýtingakvöld verður verður haldið í félagsheimilinu við Ennisbraut 1

Fimmtudagur 23. júní

kl.20.00  Mótssetning í húsnæði félagsins við Ennisbraut 1 .Súpa og brauð og kaffi.

Föstudagur 24. júní

kl. 05.30
Mæting á bryggju

kl. 06.00
Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00
Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.  Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, þegar komið er í land.

kl.20:00
Farið yfir aflatölur fyrri dags í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1

Laugardagur 25. júní
kl. 05.30   Mæting á bryggju

kl. 06.00   Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00   Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, þegar komið er í land.

kl. 20.00
Lokahóf í Björgunarsveitarhúsinu á Rifi.

Keppendur: 15.000  kr.

Stakur miði á lokahóf: 5.000 kr.

Innifalið fyrir keppendur:

• Mótsgjald • Mótsgögn • Nesti í keppni • kaffi við komu í land • Miðar  í sund • Lokahóf.

Þátttökutilkynningar:

Félagar SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns í síðasta lagi  þriðjudaginn 14. júní nk.
Sjósnæfélagar tilkynni þátttöku sína og Jóns B. formanns í s. 891 7825,  eða í netfangið haarif@haarif.is  í síðasta lagi kl. 20 þriðjudaginn 14.  júní nk.

Gistimöguleikar:

Tjaldsvæðið Ólafsvík, sími 436 1543

Nánari upplýsingar:

Ritari Sjósnæ, Gunnar Jónsson s. 895 6616