Aðalmót SJÓSNÆ

Stjórn Snjósnæ býður ykkur velkomin á opna Sjósnæ mótið 24.-25. júní
2016

Þá er loksins komið að hinu stórskemmtilega opna móti Sjósnæ sem beðið
hefur verið eftir í heilt ár. Reynt verður bjóða upp á 1dags keppni
verði því við komið.Annars er í vændum spennandi mót ef marka má Völvu
félagsins sem hefur marga fjöruna sopið.   Við tyllum okkur niður með
kaffibolla og reykkelsið fyllir vitin um leið og hún rýfur upp stokk af
tarot-spilum sem hún hrærir í af áfergju og gýtur til mín þessum augum
sem sjá í gegnum holt og hæðir um leið og hún veiðir uppúr mér hvar og
hvenær þetta mót skuli haldið og er ég ekki fyrr búinn að sleppa orði en
hún sér öldugang en vill ekki meina að veðrið sé slæmt heldur sé þetta
meira eins veðrið sé gengið niður og öldurnar lægji nú líka eftir því
sem líði á morguninn annars sé þetta skaplegasta veiði-veður ekki mikil
sól og svo kemur hann nú til með að rigna fyrripart seinni dags en endar
daginn bara með sól og blíðu.Aflabrögð verða með ágætum segir hún en það
er eins og hann komi í gusum ,veiðist vel á meðan er en dettur niður á
milli og mikilvægt að menn detti ekki í leiðindi því fyrr en varir rýkur
fiskiríð upp aftur.Mér sýnist eins og nýliðum og þeim sem ekki hafa
stundað sportið af kappi gangi jafnvel betur þeim en telja sig vita
betur og á það sérlega við um þá sem hugsa út fyrir rammann og þora að
leita nýrra leiða,hér er eitthvað met segir hún með undrunarsvip sem
umhverfist í grettu um leið og hún tjáir mér að sjaldgæfur fiskur muni
veiðast en ófrýnilegur sé hann.Þegar ég reyni að fá upplýsingar um
fjölda tegunda vill hún lítið láta uppi annað en að það komi tía og
fjarki en mótið eigi þegar upp er staðið eftir að verða eftirminnilegt
og allir glaðir.

Miðvikudagur 22. júní kl 20.00
Hnýtingakvöld verður verður haldið í félagsheimilinu við Ennisbraut 1

Fimmtudagur 23. júní

kl.20.00  Mótssetning í húsnæði félagsins við Ennisbraut 1 .Súpa og brauð og kaffi.

Föstudagur 24. júní

kl. 05.30
Mæting á bryggju

kl. 06.00
Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00
Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.  Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, þegar komið er í land.

kl.20:00
Farið yfir aflatölur fyrri dags í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1

Laugardagur 25. júní
kl. 05.30   Mæting á bryggju

kl. 06.00   Haldið til veiða frá Ólafsvík

kl. 14.00   Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar Kaffi í húsnæði Sjósnæ, Ennisbraut 1, þegar komið er í land.

kl. 20.00
Lokahóf í Björgunarsveitarhúsinu á Rifi.

Keppendur: 15.000  kr.

Stakur miði á lokahóf: 5.000 kr.

Innifalið fyrir keppendur:

• Mótsgjald • Mótsgögn • Nesti í keppni • kaffi við komu í land • Miðar  í sund • Lokahóf.

Þátttökutilkynningar:

Félagar SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns í síðasta lagi  þriðjudaginn 14. júní nk.
Sjósnæfélagar tilkynni þátttöku sína og Jóns B. formanns í s. 891 7825,  eða í netfangið haarif@haarif.is  í síðasta lagi kl. 20 þriðjudaginn 14.  júní nk.

Gistimöguleikar:

Tjaldsvæðið Ólafsvík, sími 436 1543

Nánari upplýsingar:

Ritari Sjósnæ, Gunnar Jónsson s. 895 6616

Aðalmót Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur 17.- 18. júní

Þá er komið að aðalmóti Sjóstangafélags Reykjavíkur sem haldið verður á Patreksfirði 17. og 18 júní.

Þáttökugjald er kr. 15.000,- sem greiðist við mótssetningu. Innifalið er miði á lokahóf, aukamiði kostar 5.000,-

Bent skal á að hægt er að taka ferjuna Baldur frá Stykkishólmi klukkan 9:00 og 15:45 á fimmtudeginum 16. júní og til baka frá Brjánslæk klukkan 12:15 og 19:00 á sunnudeginum 19. júní Panta þarf fyrir bíla í síma 433 2254.

Skráning Þáttaka tilkynnist á skáningarsíðu á heimasíðu SJÓR , með tölvupósti á sjorek@outlook.com  eða til formanns þíns félags í síðasta lagi miðvikudaginn 7. júní  2016 kl. 20:00.  Takið einnig fram ef maki er með í för vegna makadagskrár. Síðan mun ykkar formaður tilkynna okkur þátttökuna sama dag. Eins dags veiði Samkvæmt þriðju grein laga S.J.Ó.L. verður boðð upp á eins dags veiði innan veiðitímabils. Veiðimaður sem skráir sig til veiði einn dag skal gera grein fyrir hvorn daginn hann vill veiða og mun mótstjórn reyna að verða fyrir óskum þeirra sem það kjósa.

Fyrir hönd Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur

Sjóstangaveiðimót dagana 17. og 18. júní 2015 á Patreksfirði

Mótsskrá Fimmtudagur 16. júní
Kl. 20.00         Kjötsúpa í félagsheimilinu
Kl. 21.00         Mótið sett, skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf.

Föstudagur 17. júní
Kl. 05.30         Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum.
Kl. 06.00         Siglt á fengsæl mið.
Kl. 14.00         Veiði hætt og haldið til hafnar.
Kl. 19.30         Plokkfiskur á veitingastaðnum Heimsenda í boði SJÓR, þá verður farið yfir aflatölur dagsins.

Laugardagur 18. júní
Kl. 05.30         Mæting á bryggju.
Kl. 06.00         Haldið til veiða á ný.
Kl. 14.00         Haldið til hafnar.
Kl. 20.30         Lokahóf og verðlaunaafhending á veitingastaðnum Heimsenda

000250

Kynningar- og nýliðakvöld

Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur stendur fyrir kynningar- og nýliðakvöldi  föstudaginn 8. júlí. 

Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér sjóstangaveiði.  Farið verður í kvöldsiglingu með bát Sea Adventures, rennt fyrir fisk, aflinn grillaður og snæddur.

SJÓR félagar eru hvattir til að taka með sér vini og fjölskyldumeðlimi sem hafa áhuga á að kynna sér félagsskapinn.

30 pláss eru í boði og kostar 5.000 kr. á mann.

Skráning er á viðburðir á heimasíðu sjorek.is eða á netfangið sjorek@outlook.com

Skráningarfrestur framlengdur á innanfélagsmót SJÓR / Opið hús

Vegna góðrar veðurspár hefur verið ákveðið að framlengja skráningarfrest vegna innanfélagsmóts SJÓR 21. maí.

Tekið verður við skráningum til kl 19:00 þriðjudaginn 17. maí Skráning fer fram hér á heimasíðu félagsins, á netfangið sjorek@outlook.com eða hjá Smára í síma 845-6556 eða  Elínu í síma 664-3109

Opið hús vegna mótsins verður í félagsheimili SJÓR Höllinni þriðjudaginn 17. maí kl 20:00

Aðalmót SJÓSKIP

Sjóskip hefur opnað fyrir tímabilið 2016 skráningu á landsmót félagsins. Tilkynning keppenda um þátttöku er möguleg á heimasíðu Sjóskips en eins og áður þarf endanleg staðfesting að koma frá formanni hvers félags.

Fimmtudagur 26. maí
Kl. 20:00 Mótssetning verður á Vitakaffi, Stillholti 16.
Skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf.

Föstudagur 27. maí

Kl. 05:30 Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum.
Kl. 06:00 Siglt á miðin.
Kl. 14:00 Veiði hætt og haldið til hafnar. Súpa í boði við höfnina.

Laugardagur 28. maí
Kl. 05:30 Mæting á bryggju.
Kl. 06:00 Haldið til veiða á ný.
Kl. 13:00 Veiði hætt og haldið til hafnar. Kaffi í boði við höfnina
Kl. 20:00 Lokahóf og verðlaunaafhending verður á Vitakaffi, Stillholti 16-18

Þátttökugjald kr. 15.000,- sem greiðist við mótssetningu.  Aukamiði á lokahófið kr. 5.000,-

Um skráningu.
Formenn senda síðan staðfestingu til Sjóskips um fjölda keppenda, sveitaskipan ofl. Tilkynning frá formananni hvers félags þarf að berast Sjóskip fyrir 23. maí.

Ef það eru einhverjar spurningar varðandi mótið er hægt að hafa samband við Jóhannes formann Sjóskips í síma 860-0942 eða senda okkur tölvupóst á sjoskip@sjoskip.is

gussiGussi með risaþorskinn sem hann veiddi á innanfélagsmóti SJÓSKIP