Viðtal á Bylgjunni (Bítið) um sjóstangaveiðina

Ef við viljum efla sjóstangaveiðifélögin og fá fleira fólk með okkur, þurfum við að að láta af okkur vita sem víðast. Hér er viðtal við Elínu í þættinum Bítið (á Bylgjunni), þar sem hún spjallar um sjóstangaveiðina og útskýrir út á hvað þetta gengur. Um að gera að deila sem víðast.

https://www.visir.is/k/08cd14dc-7331-40af-8af9-4e4ecdee5787-1554191042449

 

Styttist í kótelettukvöldið, 6. apríl

Kæru félagar.

Nú sytttist í kótelettukvöldið. Það verður laugardaginn 6. apríl n.k. í Höllinni okkar að Grandagarði.

Kótelettumeistarar félagsins munu reiða fram glæsilega veislu af sinni alkunnu snilld.

Húsið opnar kl 18:00 og borðhald hefst kl 19:00.

Kræsingarnar kosta aðeins 3.500 kr. á mann og gestir mæta með sín drykkjarföng. Vatn og gos verður í boði SJÓR. Vekjum athygli á að EKKI verður posi á staðnum.

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir þriðjudaginn 3. apríl.
Skráning er á skráningarsíðu á heimasíðu SJÓR og á netfangið sjorek@outlook.com.

Kveðja, stjórn SJÓR

Kótelettukvöld, 6. apríl

Kæru félagar.

Nú sytttist í kótelettukvöldið. Það verður laugardaginn 6. apríl n.k. í Höllinni okkar að Grandagarði.

Kótelettumeistarar félagsins munu reiða fram glæsilega veislu af sinni alkunnu snilld.

Húsið opnar kl 18:00 og borðhald hefst kl 19:00.

Kræsingarnar kosta aðeins 3.500 kr. á mann og gestir mæta með sín drykkjarföng. Vatn og gos verður í boði SJÓR. Vekjum athygli á að EKKI verður posi á staðnum.

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir þriðjudaginn 3. apríl.
Skráning er á skráningarsíðu á heimasíðu SJÓR og á netfangið sjorek@outlook.com.

Kveðja, stjórn SJÓR

Aðalmót SJÓVE 29.–30. mars 2019

Ágæti veiðifélagi.

Fimmudagur 28. mars
Kl. 20.00 // Mótssetning í félagsheimili SJÓVE

Föstudagur 29. mars
Kl. 06.30 // Mæting á smábátabryggju (Viktartorgi).
Kl. 07.00 // Haldið til veiða frá Smábátabryggju.
Kl. 15.00 // Veiðafæri dregin upp og haldið til hafnar.
Kl. 15.30 // Löndun, hressing og fjör.
Kl. 20.00 // Aflaspjall og afrek dagsins rædd í félagsheimili SJÓVE.

Laugardagur 30. mars
Kl. 05.30 // Mæting á smábátabryggju (Viktartorgi).
Kl. 06.00 // Haldið til veiða frá Smábátabryggju.
Kl. 14.00 // Veiðafæri dregin upp, og haldið til hafnar.
Kl. 14.30 // Löndun og ennþá meira fjör.
Kl. 20.00 // Lokahóf í félagsheimili SJÓVE.

Mótsgjald er 15.000 kr.

Innifalið í mótsgjaldi fyrir keppendur:
// Mótsgögn og gott skap.
// Kaffi og eða súpa við komuna í land á föstudag.
// Einn miði á lokahóf.

Stakur miði á lokahóf er 5.000 kr.

Lokaskráning:
Mánudaginn 25. mars kl. 20.00.

Skráning:
Þátttaka tilkynnist til formanns í þínu félagi og síðan mun ykkar formaður
tilkynna okkur ykkar þátttöku á heimasíðu SJÓVE. www.sjove.is

Nánari upplýsingar: 
Formaður: Sigtryggur Þrastarsson // Sími 860 2759
Gjaldkeri: Ævar Þórisson // Sími 896 8803

Bestu veiðikveðjur og sjáumst sem flest á OPNA SJÓVE-MÓTINU

Dagsetningar móta 2019

Sjóskip: Aðalmót 15.–16. mars, Akranes
Félagsmót 23. mars, Akranes

Sjóve: Aðalmót 29.–30. mars, Vestmannaeyjar
Félagsmót 27. apríl, Vestmannaeyjar

Sjósnæ: Aðalmót 24.–24. maí, Ólafsvík
Félagsmót 27. apríl, Ólafsvík

Sjór: Aðalmót 21.–22. júní, Patreksfjörður
Félagsmót 27. apríl, staðsetning óákveðin

Sjónes: Aðalmót 5.–6. júlí, Neskaupstaður 30 ára afmælismót
Félagsmót 25. ágúst, Neskaupstaður

Sjóak: Aðalmót 16.–17. ágúst, Dalvík
Félagsmót 12/13. júlí, staðsetning óákveðin

Sjósigl: Aðalmót 23.–24. ágúst, Siglufjörður 30 ára afmælismót
Félagsmót 20. júlí, Siglufjörður

SJÓSKIP, aðalmót 15. og 16. mars

Aðalmót SJÓSKIP, sem er fyrsta aðalmót ársins, verður haldið á Akranesi
dagana 15. og 16. mars. Endanleg dagskrá liggur ekki fyrir en allir SJÓR félagar,
sem hafa hug á að mæta, eru hvattir til að skrá sig.

Hægt er að tilkynna þátttöku svona:
Senda póst á Jóhannes, formann SJÓSKIP: johannes@skaginn3x.com

Eða

Skrá sig hjá Hersir: hersirg@web.de eða í síma 865 4053

Síðasti skráningardagur er sunnudagurinn 10. mars.