Aðalmót Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur 17.- 18. júní

Þá er komið að aðalmóti Sjóstangafélags Reykjavíkur sem haldið verður á Patreksfirði 17. og 18 júní.

Þáttökugjald er kr. 15.000,- sem greiðist við mótssetningu. Innifalið er miði á lokahóf, aukamiði kostar 5.000,-

Bent skal á að hægt er að taka ferjuna Baldur frá Stykkishólmi klukkan 9:00 og 15:45 á fimmtudeginum 16. júní og til baka frá Brjánslæk klukkan 12:15 og 19:00 á sunnudeginum 19. júní Panta þarf fyrir bíla í síma 433 2254.

Skráning Þáttaka tilkynnist á skáningarsíðu á heimasíðu SJÓR , með tölvupósti á sjorek@outlook.com  eða til formanns þíns félags í síðasta lagi miðvikudaginn 7. júní  2016 kl. 20:00.  Takið einnig fram ef maki er með í för vegna makadagskrár. Síðan mun ykkar formaður tilkynna okkur þátttökuna sama dag. Eins dags veiði Samkvæmt þriðju grein laga S.J.Ó.L. verður boðð upp á eins dags veiði innan veiðitímabils. Veiðimaður sem skráir sig til veiði einn dag skal gera grein fyrir hvorn daginn hann vill veiða og mun mótstjórn reyna að verða fyrir óskum þeirra sem það kjósa.

Fyrir hönd Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur

Sjóstangaveiðimót dagana 17. og 18. júní 2015 á Patreksfirði

Mótsskrá Fimmtudagur 16. júní
Kl. 20.00         Kjötsúpa í félagsheimilinu
Kl. 21.00         Mótið sett, skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf.

Föstudagur 17. júní
Kl. 05.30         Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum.
Kl. 06.00         Siglt á fengsæl mið.
Kl. 14.00         Veiði hætt og haldið til hafnar.
Kl. 19.30         Plokkfiskur á veitingastaðnum Heimsenda í boði SJÓR, þá verður farið yfir aflatölur dagsins.

Laugardagur 18. júní
Kl. 05.30         Mæting á bryggju.
Kl. 06.00         Haldið til veiða á ný.
Kl. 14.00         Haldið til hafnar.
Kl. 20.30         Lokahóf og verðlaunaafhending á veitingastaðnum Heimsenda

000250

Kynningar- og nýliðakvöld

Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur stendur fyrir kynningar- og nýliðakvöldi  föstudaginn 8. júlí. 

Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér sjóstangaveiði.  Farið verður í kvöldsiglingu með bát Sea Adventures, rennt fyrir fisk, aflinn grillaður og snæddur.

SJÓR félagar eru hvattir til að taka með sér vini og fjölskyldumeðlimi sem hafa áhuga á að kynna sér félagsskapinn.

30 pláss eru í boði og kostar 5.000 kr. á mann.

Skráning er á viðburðir á heimasíðu sjorek.is eða á netfangið sjorek@outlook.com

Skráningarfrestur framlengdur á innanfélagsmót SJÓR / Opið hús

Vegna góðrar veðurspár hefur verið ákveðið að framlengja skráningarfrest vegna innanfélagsmóts SJÓR 21. maí.

Tekið verður við skráningum til kl 19:00 þriðjudaginn 17. maí Skráning fer fram hér á heimasíðu félagsins, á netfangið sjorek@outlook.com eða hjá Smára í síma 845-6556 eða  Elínu í síma 664-3109

Opið hús vegna mótsins verður í félagsheimili SJÓR Höllinni þriðjudaginn 17. maí kl 20:00

Aðalmót SJÓSKIP

Sjóskip hefur opnað fyrir tímabilið 2016 skráningu á landsmót félagsins. Tilkynning keppenda um þátttöku er möguleg á heimasíðu Sjóskips en eins og áður þarf endanleg staðfesting að koma frá formanni hvers félags.

Fimmtudagur 26. maí
Kl. 20:00 Mótssetning verður á Vitakaffi, Stillholti 16.
Skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf.

Föstudagur 27. maí

Kl. 05:30 Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum.
Kl. 06:00 Siglt á miðin.
Kl. 14:00 Veiði hætt og haldið til hafnar. Súpa í boði við höfnina.

Laugardagur 28. maí
Kl. 05:30 Mæting á bryggju.
Kl. 06:00 Haldið til veiða á ný.
Kl. 13:00 Veiði hætt og haldið til hafnar. Kaffi í boði við höfnina
Kl. 20:00 Lokahóf og verðlaunaafhending verður á Vitakaffi, Stillholti 16-18

Þátttökugjald kr. 15.000,- sem greiðist við mótssetningu.  Aukamiði á lokahófið kr. 5.000,-

Um skráningu.
Formenn senda síðan staðfestingu til Sjóskips um fjölda keppenda, sveitaskipan ofl. Tilkynning frá formananni hvers félags þarf að berast Sjóskip fyrir 23. maí.

Ef það eru einhverjar spurningar varðandi mótið er hægt að hafa samband við Jóhannes formann Sjóskips í síma 860-0942 eða senda okkur tölvupóst á sjoskip@sjoskip.is

gussiGussi með risaþorskinn sem hann veiddi á innanfélagsmóti SJÓSKIP