Sölutorg SJÓR er vetvangur þar sem SJÓR félagar geta auglýst til kaups eða sölu varning sem tengist sjóstangaveiði.
Til að komast inn á sölutorgið er hægt að smella hér eða velja slóð hér að ofan.
Greinasafn eftir: sjorek2014
Veiðidagar sumarið 2016
Hér eru veiðidagar fyrir sumarið 2016. Veiðimenn eru hvattir til að huga að gistingu sem fyrst.
| Félag | Aðalmót | Staður | Innanfélagsmót | Staður |
| Sjóve | 6-7 maí | Vestmannaeyjar |
21.maí |
Vestmannaeyjar |
| Sjór | 17-18 júní | Patreksfjörður |
21.maí |
Grundarfjörður |
| Sjóskip | 27-28 maí | Akranes |
19.mar |
Akranes |
| Sjósnæ | 24-25 júní | Ólafsvík |
30.apr |
Rif |
| Sjónes | 15-16 júlí | Neskaupsstaður |
28.ágú |
Neskaupsstaður |
| Sjósigl | 1-2 júlí | Siglufjörður |
11.jún |
Siglufjörður |
| Sjóak | 12-13 ágúst | Dalvík |
9.júl |
Grímsey |
Þorrablót SJÓR
Stórleikarinn Gunnar Jónsson verður veislustjóri á þorrablóti SJÓR. Því vill engin missa af.
Vinsamlegast skráið í síðasta lagi þriðjudaginn 12. janúar.
Skráning er á heimasíðu SJÓR á netfanginu sjorek@outlook.com eða í símum 845 6556 Smári eða 892 0890 Gottskálk
Þorrablót SJÓR
Þorrinn nálgast og kominn tími á hið árlega þorrablót SJÓR.
Þorrablótið verður haldið í félagsheimilinu okkar Höllinni Grandagarði 18 laugardaginn 16. janúar. Húsið opnar 19:00 og borðhald hefst 20:00.
SJÓR heldur aðeins eitt þorrablót á ári og það vill enginn SJÓR félagi missa af því. Takið með ykkur gesti.
Frábær þorramatur, skemmtiatriði og happadrætti.
Verð aðeins 5.000,-
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir þriðjudaginn 12. janúar.
Skráning er á heimasíðu SJÓR á netfanginu sjorek@outlook.com eða í símum 845 6556 Smári eða 892 0890 Gottskálk
Þorrablót SJÓR
Hið árlega þorrablót SJÓR verður haldið laugardaginn 16. janúar í Höllinni Grandagarði 18.
Takið daginn frá og takið með ykkur gesti.
Nánari upplýsingar á næstu dögum.
Jólakveðja
Stjórn SJÓR óskar félagsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra sem og öllu sjóstangaveiði fólki , samstarfsmönnum,skipstjórum og styrktaraðilum um land allt gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir allar góðu samverustundirnar á árinu sem er að líða.
Fyrir hönd stjórnar SJÓR
Elín Snorradóttir Formaður
Jólaglögg SJÓR
Hið árlega Jólaglögg Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldið næstkomandi föstudag, 4. desember kl 20:00 í nýja félagsheimilinu okkar Höllinni Grandagarði 18.
Í boði er jólaglögg, piparkökur og félagsskapur góðra veiðifélaga.
Jólaglögg SJÓR
Jólaglögg SJÓR verður haldið nýja félagshemilinu okkar Höllinni Grandagarði 18 föstudaginn 4. desember.
Kótelettukvöld
Kótelettukvöld Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldið í nýju og glæsilegu félagsheimili okkar, Höllinni Grandagarði 18, laugardaginn 14. nóvember.
Kótelettumeistarar félagsins munu reiða fram glæsilega veislu af sinni alkunnu snilld.
Þetta er kjörið tækifæri til að skoða nýtt og glæsilegt félagsheimili okkar og njóta góðra veitinga í góðra vina hóp. Félagar eru hvattir til að taka með sér gesti sem þeir vilja kynna fyrir félaginu.
Húsið opnar kl 18:00 og borðhald hefst kl 19:00.
Veislan kostar aðeins kt. 3.000,- á mann og drykkir á sanngjörnu SJÓR verði.
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir þriðjudaginn 10. nóvember.
Skráning er á skráningarsíðu á heimasíðu SJÓR á netfangið sjorek@outlook.com eða í símum 892 0890 Gottskálk eða 845 6556 Smári.
Vetrardagskrá
Nú þegar nýja Höllin okkar á Grandagarði er tilbúinn verður blásið til glæsilegrar vetrardagskrár.
Laugardag 14. nóvember 2015 Kótelettukvöld
Föstudagur 4. desember 2015 Jólaglögg
Laugadagur 16. janúar 2016 Þorrablót
Föstudagur 26. febrúar 2016 Aðalfundur SJÓR
Takið dagana frá
Viðburðirnir verða auglýstir nánar þegar nær dregur.
