Íslandsmeistaramót sumarsins og Fiskistofa

Kæru félagar.

Eins og þið vitið kannski flest þá hefur gengið á ýmsu varðandi það að fá samþykktar veiðiheimildir fyrir sumarið 2017.

Fiskistofa telur að kostnaður við mótshald hjá sjóstangaveiðifélögunum í SJÓL sé ekki í samræmi við reglugerð um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum og hefur á þeim grundvelli ákveðið að veita ekki leyfi til að halda sjóstangaveiðmót hjá aðildarfélögum Sjól í sumar. Einnig neitar Fiskistofa að taka til baka ákvörðun um afturvirk ákvæði o.fl.

Það má líka koma fram að þetta er ekki fyrsta árið sem sem þessi stofnun gerir ýmsar óvæntar breytingar og athugasemdir varðandi félögin og starfsemi þeirra.

SJÓL hefur, undanfarna mánuði, átt í ítrekuðum bréfaskiptum og fundahöldum við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Fiskistofu til að ná mætti sáttum svo mótin gætu farið fram.

Því miður hefur ekki orðið neinn árangur af þessum sáttaumleitunum og nú er svo komið að ákveðið hefur verið að fara í formlegt kæruferli og freista þess að fá ákvörðun Fiskistofu hnekkt, jafnframt að fá niðurstöðu í þau mál sem ágreiningur stendur um.

Það er ótrúlegt að staðan skuli vera þessi og við setjum inn tilkynningar um leið og eitthvað er að frétta af málinu.

Kveðja, stjórn SJÓR

 

 

Aðalfundur SJÓL 8. apríl 2017

Ágætu félagsmenn.

Í ljósi þess verkefnis sem aðildarfélög SJÓL standa í gagnvart úthlutun á veiðiheimild frá Fiskistofu var tekin ákvörðun um að fresta Aðalfundi sem halda átti 11. mars og þess í stað að stefna á 8. apríl. Ákvörðun stjórnar var tekin á þeim grundvelli að á meðan félög innan SJÓL að undanskyldu Sjóís hafa ekki fengið vilyrði um að halda sjóstangaveiðimót þá megi gera ráð fyrir að fundarefni er varðar veiðiárið 2017 gæti orðið marklaus.

Stjórn Sjól hefur átt stöðufundi með Fiskistofu og Atvinnuvegaráðuneytinu um hvernig leysa megi úr þeirri stöðu sem félögin eru stödd í en um er að ræða synjum sem hefur ekki verið beytt frá því að sjóstangaveiðifélög hófu starfsemi fyrir rúmri öld síðan.

MUNIÐ! Kótilettukvöld SJÓR 10. mars

Kótelettukvöld Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldið í Höllinni, Grandagarði 18, laugardaginn 10. mars.

Kótelettumeistarar félagsins munu reiða fram glæsilega veislu af sinni alkunnu snilld.

Félagar eru hvattir til að taka með sér gesti.

Húsið opnar kl 18:00 og borðhald hefst kl 19:00.

Veislan kostar aðeins 3.000 kr. á mann og drykkir á sanngjörnu SJÓR-verði.

Vekjum athygli á að EKKI verður posi á staðnum.

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir miðvikudaginn 7. mars.
Skráning er á skráningarsíðu á heimasíðu SJÓR á netfangið sjorek@outlook.com