INNANFÉLAGSMÓT SJÓR, GRUNDARFIRÐI 6. MAÍ


Innanfélagsmót SJÓR verður haldið 6. maí og farið verður frá Grundarfirði.

Við hvetjum félagsmenn til að koma og veiða því þetta er okkar helsta fjáröflun.

Þar sem mikil ánægja var með fyrirkomulagið á seinasta innanfélagsmóti, höfum við ákveðið að halda okkur við það. Það verður sem sagt ekki um einstaklingskeppni að ræða heldur veiðir öll áhöfnin sem einn maður.

Keppni verður á milli báta. Við veitum þremur aflahæstu skipstjórum verðlaun strax á laugardeginum en áhafnirnar fá sín verðlaun í Höllinni á sunnudeginum.

Trúnaðarmenn hafa sömu skyldum að gegna og venjulega:

  • Að sjá til þess að drykkjarföng og björgunarvesti séu um borð
  • Að sjá til þess að röðun á báta sé rétt
  • Að skipting fari fram á miðjum veiðitíma
  • Að bátur sé þrifinn
  • Að kör séu merkt bát við löndun.

Ekkert mótsgjald verður innheimt.

Skráning: Á vefsíðu SJÓR, http://www.sjorek.is eða með pósti á sjorek@outlook.com

Skráningu lýkur þri. 2. maí kl. 20:00

INNANFÉLAGSMÓT 6. MAÍ – SKRÁNING

Veiðimenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Ekki verður boðið uppá nesti en drykkjarvatn verður um borð í bátum fyrir keppendur.

DAGSKRÁ
Laugardagur 6. maí
Kl. 7:00 Mæting á bryggju og þar verða mótsgögn afhent
Kl. 8:00 Haldið til veiða
Kl. 14:00 Veiðarfæri dregin upp og haldið til hafnar

Sunnudagur 7. maí
Kl. 15:00 Við hittumst í Höllinni, förum yfir árangur mótsins og veitum verðlaun fyrir þrjár aflahæstu áhafnirnar. Kaffi, gos og léttar veitingar í boði. Félagsmenn eru hvattir til að kíkja í kaffi þó þeir hafi ekki farið á veiðar.

Ef það eru einhverjar spurningar varðandi mótið er hægt að hafa samband við Lúther
formann SJÓR, í síma 893 4007 eða senda tölvupóst á ljosafl@simnet.is

Kveðja, stjórn SJÓR

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s