Kæru veiðifélagar,
þá er komið að Sjóstangaveiðimóti Sjónes sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils.
Fimmtudagur 19. júlí.
- Mótið verður sett og mótsgögn afhent kl. 20:00 í Beituskúrnum.
- Matarmikil íslensk kjötsúpa, brauð og kaffi í boði Sjónes.
Föstudagur 20. júlí.
- Lagt úr höfn við vigtarskúrinn kl. 6:00 og veiðum hætt kl. 14:00.
- Kaffi og brauð á bryggjunni.
- Frítt í sund báða daganna.
- Kl. 20:30 farið yfir tölur dagsins, í Beituskúrnum.
Laugardagur 21. júlí.
- Lagt úr höfn við vigtarskúrinn kl. 6:00 og veiðum hætt kl. 13:00.
- Kl 14:00 Tekið verður á móti keppendum, mökum og skipstjórum, með kaffi og kökum á löndunarstað við vigtarskúrinn.
- Kl. 19:00 opnar Hótel Hildibrand kl 20:00 hefst lokahófið með þriggja rétta veislumáltíð, og verðlaunaafhending.
Í mótinu verða blandaðar sveitir karla og kvenna.
Mótsgjald er 15.000 kr. og innifalið miði á lokahófið, aukamiði kostar 5.000 kr.
ATHUGIÐ: Keppendur sjá sjálfir um nestið sitt um borð en boðið verður uppá vatn og gos um borð.
Gistimöguleikar:
- Tónspil herbergi – Sími 477 1580 og 894 1580 – Pétur.
- Hótel Edda – Sími 444 4000.
- Hótel Capitano – Sími 477 1800 – Sveinn.
- Gistihúsið Siggi Nobb – Sími 477 1800 – Sveinn.
- Hildibrand Hótel – Sími 865 5868 – hildibrand@hildibrand.com
- Gistheimilið við lækinn – Sími 477 2020
Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags, sem mun svo tilkynna okkur um þátttöku þína, í síðasta lagi miðvikudaginn 11. júlí.
Matthías – sími: 477 1663 og 848 7259
Kári – sími: 477 1512 og 859 1066