SJÓR mun halda kynningarmót þann 4. maí á Patreksfirði. Öll velkomin. Dagskrá og skráning auglýst síðar.
Núna auglýsum við eftir félögum sem geta a) lánað græjur fyrir væntanlega þátttakendur eða b) tekið að sér að yfirfara veiðihjól eða viti um einhverja sem taka það að sér.
Áhugasamir hafi samband við Kjartan formann í síma 858 6219.
Það verður að segjast að það er skammt stórra högga á milli hjá okkur í SJÓR um þessar mundir. Í sumar kvöddum við Svavar, við vorum að kveðja Friðleif og núna er elskulegi Gotti látinn. Hæglátur en alltaf brosmildur og ljúfur og snillingur þegar kom að því að gera við hjólin okkar. Hans verður sárt saknað og við vottum fjölskyldu hans og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Gotta þökkum við fyrir góða samveru gegnum árin.
Á laugardagskvöldið s.l. héldum við þorrablótið okkar. 23 höfðu skráð sig og mættu allir og félagarnir eyddu góðri kvöldstund saman. Þorramaturinn kom frá Múlakaffi og var gerður góður rómur að honum. Happdrættið var á sínum stað og þó að það verði æ erfiðara að safna vinningum frá fyrirtækjum, þá hjálpuðust allir að og úr varð hin besta skemmtun. Við þökkum Flóru ehf og Gilbert úrsmið kærlega fyrir stuðninginn. Við þökkum líka þeim sem mættu, fyrir ljúft og skemmtilegt kvöld.
Næsti viðburður er þá Aðalfundurinn og langar okkur að hvetja sem flesta til að láta sjá sig. Hann verður haldinn 22. febrúar (fimmtudagur). Að þessu sinni verður boðið uppá pizzu og bjór (óáfengan, svo allir geti nú fengið sér) og við hlökkum til að sjá ykkur. Formlegt fundarboð kemur von bráðar.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Kjartan Gunnsteinsson tók í byrjun kvöldsins.