Gylfi Ingason er fallinn frá.
Góður félagi sem alltaf var tilbúinn að leggja sitt af mörkum. Hann sá um veislur af stakri snilld og ferðaðist á milli móta á litla gula bílnum sínum, sem hann hafði útbúið sérstaklega.
Hann sagði sögur frá togaraárunum þegar lítið var að gera og kenndi okkur handtökin við slóðahnýtingar. Einstaklega vinalegur maður.
SJÓR vottar fjölskyldu hans og vinum sínar innilegustu samúðarkveðjur.
