Ágæti veiðifélagi.
Fimmtudagur 14. maí
Kl. 20.00 Mótssetning í félagsheimili SJÓVE
(þeir sem ekki treysta sér á mótssetningu geta fengið mótsgögnin afhent á bryggju).
Föstudagur 15. maí
Kl. 06.30 Mæting á smábátabryggju ( Viktartorgi )
Kl. 07.00 Haldið til veiða frá Smábátabryggju.
Kl. 15.00 Veiðafæri dregin upp og haldið til hafnar.
Kl. 15.30 Löndun, hressing og fjör.
Kl. 20.00 Aflaspjall og afrek dagsins rædd í félagsheimili Sjóve.
Laugardagur 16. maí
Kl. 05.30 Mæting á smábátabryggju ( Viktartorgi )
Kl. 06.00 Haldið til veiða frá Smábátabryggju.
Kl. 14.00 Veiðafæri dregin upp og haldið til hafnar.
Kl. 14.30 Löndun og ennþá meira fjör.
Kl. 20.00 Lokahóf í félagsheimili SJÓVE
Mótsgjaldið er 15.000 kr.
Innifalið í mótsgjaldi fyrir keppendur: Mótsgögn og gott skap.
Kaffi og eða súpa við komuna í land á laugardag. Einn miði á lokahóf.
Stakur miði á lokahóf er 5.000 kr.
Lokaskráning er föstudaginn 7. maí kl. 20.00
Skráning:
Þátttaka tilkynnist til formanns í þínu félagi og síðan mun ykkar formaður
tilkynna okkur, ykkar þátttöku á heimasíðu Sjóve. www.sjove.is
Athugið Vegna Covid19-faraldurs biðjum við keppendur, skipstjóra og aðra sem að mótinu koma að hugsa um smitvarnir meðan móti stendur – því öll hlýðum við Víði.
Biðjum keppendur að skrá sig sem fyrst, svo það sé hægt að skipuleggja mótið.