Marinó nýr formaður

Aðalfundur SJÓR var haldinn í gær. Góð stemming var á fundinum. Nýr formaður og tveir nýir í stjórn.

Nýja stjórn skipa Marinó sem formaður, Kjartan gjaldkeri, Ragnar Valsson ritari, Nói Jón Marinósson og Gilbert eru meðstjórnendur, og Ágústa og Lúther varamenn.

Aðal umræðuefni fundarins var að leggja áherslu á að sigla út frá Reykjavík.

Nú er sól farin að hækka á lofti og tilvalið að kíkja á græjurnar og brýna önglana.