Aðalfundur SJÓR 24. febrúar 2026

Sæbjörn á kynningarmóti í Reykjavík í fyrra.

Aðalfundur SJÓR verður haldinn þriðjudaginn 24. febrúar 2026 í Höllinni að Grandagarði 18.

Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20:00

Dagskrá fundarins skv. 8. grein laga SJÓR:

  1. Fundur settur.
  2. Kosinn fundarstjóri og ritari.
  3. Lesin fundargerð síðasta aðalfundar, og hún borin undir atkvæði.
  4. Skýrsla fráfarandi formanns.
  5. Gjaldkeri skýrir reikninga.
  6. Lagabreytingar.
    • 6.gr og 8. gr. Breyta „tveimur endurskoðendum“ í „tvo skoðunarmenn“
    • 1. gr. Fella niður „Heimili þess er í Reykjavík“ eða breyta því í „..er heimilisfang formanns.“
  7. Kosinn formaður.
  8. Kosnir fjórir menn í stjórn og tveir varamenn.
  9. Kosnir tveir endurskoðendur.
  10. Önnur mál
    • Árgjald
    • Styrkir